Hvítasunnumót 2007HVÍTASUNNUMÓT SJÓVE 2007 Ágæti veiðifélagi. Hvítasunnumót SJÓVE sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils verður haldið 26. og 27. maí n.k. Dagskrá: Föstudagur 25. maí: Opið hús kl. 15.00 til 18.00 í húsnæði SJÓVE Heiðarvegi 7, heitt á könnunni og spjall. Kl. 20.30 mótssetning í Fjólunni við Vestmannabraut. Skipstjórar og trúnaðarfólk sett inn í sín störf. Veiðivörur, önglar og sökkur og m. fl. verður til sölu á svæðinu. Laugardagurinn 26. maí Kl. 06.00 róið úr Friðarhöfn - kl. 14.00 færi dregin úr sjó. Kl. 12.00 makar og börn keppenda hittast í húsnæði SJÓVE Heiðarvegi 7 - óvissuferð! Löndun í Friðarhöfn - góð hressing og næring á bryggjunni. Kl. 21.00 hittumst í Fjólunni - aflaspjall og afrek dagsins rædd. Sunnudagurinn 27. maí, Hvítasunnudagur: Kl. 06.00 róið úr Friðarhöfn - kl. 14.00 færi dregin úr sjó. Kl. 14.15 löndun í Friðarhöfn. KL. 20.00 lokahóf í Kívanishúsinu, veisluborðhald, verðlaunaafhending, happdrætti, Mótsgjald er kr. 15.000,- innifalinn einn miði á lokahófið. Þátttaka tilkynnist til formanns þíns félags í síðasta lagi þriðjudaginn 22. maí. Gistimöguleikar: HEIMIR Heiðarvegi 1, sími: 481 3329. ÞÓRSHAMAR Vestmannabraut 28, sími: 481 2900. SUNNUHÓLL og HAMAR, sími: 481 2900. Fjölmörg fleiri gistiheimili eru einnig í boði, sjá í Símaskránni. Nánari upplýsingar hjá: Elli Boggu í síma: 481 1118 og SJÓVE í síma: 481 1005. Bestu kveðjur, stjórn SJÓVE Flettingar í dag: 1 Gestir í dag: 1 Flettingar í gær: 41 Gestir í gær: 15 Samtals flettingar: 28052 Samtals gestir: 10117 Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:02:56 |
Tenglar |