14.05.2012 20:26

Um síðasta séns að skrá sig.

Vegna auglýsingar í blaðinu Fréttum nú í vikunni framlengjum við skráningarfrestin um einn dag til fimmtud. 17. maí. Við viljum vekja sérstaka athygli á að ekki verður veittur frekari frestur.

                                                                                                           Stjórn SJ'OVE. 

11.05.2012 12:08

Hvítasunnumót SJÓVE

Hvítasunnumót Sjóve sem gefur stig til Íslandsmeistaratitils

verður haldið 26. og 27. maí  næstkomandi í Vestmannaeyjum


Er þetta 50 ára afmælismót félagsins


Vegna fjárhagsörðuleika sjáum við okkur ekki fært að senda

út boðsbréf í pósti þetta árið eins og við erum vön.


Í stað þess grípum við til þess ráðs að senda ykkur bréf í tölvupósti um helgina

með dagskrá mótsins og um leið verða allar upplýsingar varðandi mótið settar á heimasíðu okkar. Allir félagsmenn Sjóstangaveiðifélaganna hafa fengið dagatöl frá Sjór og Sjóak með dagsetningum móta sumarsins. Það er von okkar að þið getið látið berast til ykkar félagsmanna um að leita nánari upplýsinga á heimasíðu okkar.


Ef þið viljið í framtíðinni kynna ykkar mót með tölvubréfi þá

stefni ég á að hafa sem flest e-mail hjá okkar fólki í Sjóve

þetta tekur tíma en einhverntíman verðum við að byrja,

ég held að þetta sé framtíðin.


Ég vona að þið skiljið okkar aðstöðu í þessum málum



fyrir hönd Sjóve

Páll Pálsson

892-7652


ps.  bara að minna á að tilkynna þarf þátttöku fyrir miðvikudaginn 16. maí

mun koma fram í bréfinu.

  • 1
Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 41
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 28052
Samtals gestir: 10117
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 06:02:56

Tenglar